Velti því fyrir mér í gærkveldi hvort ekki væri tími til kominn að setja línur á bloggið - þó ekki væri nema að týna til svona daginn….
Vaknaði um hálfátta (á Brussel tíma), snúsaði fram til átta - sem var ekki alveg alsnjallt. Var þó mættur á flugvöllinn klukkuíma fyrir brottför (eftir hlaup milli brautarpalla) og kominn að hliði á góðum milli tíma ásamt því að kaupa jólagjöf
Dormaði mest megnis í fluginu, las þó nokkra kafla í “The Lost Continent” eftir Bill Bryson. Nokkuð skondin bók um ferðalag Bills á æskuslóðirnar - er svona næstum hálfnaður, en hugurinn er farinn að velta fyrir sér hversu lengi hann geti haldið þessari skemmtun út - því þetta er farið að vera nokkuð fyrirsjáanlegt, og, kannski ekki alltaf jafn fyndið og fyrst.
Í fluginu frá Kaupmannahöfn horfði ég á Harry Potter og fangann frá Azkaban, óttalega klént - en ágætis afþreying, held ég hafi lítið sofnað yfir þessu. Bætti við nokkrum köflum úr bókinni fyrr nefndu.
Í fríhöfninni keypti ég tvær jólagjafir og Haustsól fyrir Þóru - það eru fjallagrasavínpælingar í gangi hjá þeim systrum.
Þangbrandur er í PS3 kaupapælingum og fór nokkur tími í að spegúlera í því - og leita leiða til að fjármagna þau ósköp.
Hálf latur, Pétur kíkti við og mér fannst raunasvipurinn svo mikill á honum að ég lagði ekki í annað en að mæta í kjallarann. Við Rikki náðum að setja fyrstu spónaplötuna á Norður-vegginn, þá eru bara 32 eftir…
Ætli ég reyni ekki að fara snemma í bælið, blóðprufa og blóðþrýstingssíriti á morgun - fastandi, eins gott að muna það!