Vaknaði að venju grjótsnemma.  Þennan dag byrjaði ég þó á því að fara í morgungöngu með Þóru - vorum tæpa klukkustund á ferð.  Rákumst á gamlan æskuvin minn, hann Ella, en hann var á gangi með hundana sína tvo.  Við fengum frá honum ýmis gullkorn og benti hann okkur á vefsíðuna sína ef áhugi væri fyrir því að skoða hundaeign.  Elli er nokkuð lipur við að halda dagbók sé ég á blog-síðu hans.

Fyrir hádegisfund skellti ég mér í Rúmfatalagerinn og keypti (á kostatilboði vitaskuld) nýjar sængur og kodda fyrir okkur hjónin - það verður ugglaust notalegt að leggjast í kvöld … reyndar fór Þóra eitthvað að masa um gamlar dýnur og þesslags - en ég vona að ég sofi þessi ummæli úr mér í nótt.

Seinniparturinn fór til einskis - í alltof langa og leiðinlega páskamatsinnkaupaferð.  Við munum ekki svelta - segi ekki meir !

Uppáhaldsmaturinn minn í kvöldmatinn - soðin ýsa, kartöflur, hellingur af smjöri og rúgbrauð.

Átti ágætan kvöldfund, nú er bara að finna upp á einhverju sniðugu fyrir svefninn.