Sent inn af siggimagg hinn 07 apr 2009 klukkan 07:52 eh.
Þriðjudagur 7. apríl
Nokkuð rólegur dagur, fyrsti fyrirsjánlegi heili frídagurinn í páskafrí-inu. Vaknaði snemma í morgun og var að “væflast” í hinu og þessu fram að hádegi. Sótti hádegisfund og að því loknu fór ég í kaffi til gamla settsins. Bauð þeim í leiðinni í fót eða bak á Páskadag.
Við Þóra fórum seinnipartinn í flísaleit, allt er þetta meir og minna gullhúðað - en fundum ágæta flís í Byko fyrir rúmar 1600 krónur fermetran og skelltum okkur á hana. Þá er bara að koma þessu á - kannski páskafrí-ið verði ekkert svo mikið frí þegar upp er staðið ?
Rakst á þetta á netinu: http://www.selffinder.net/2009/03/its-all-happening-in-dubaispectacular.html Ansi svalt
Eftir kvöldfund settist ég við tölvuræksnið - er reyndar ekki mikið ræksni, nýjasta nýtt og fínasta fínt … keyrir raunar Vista sem mörgum kann að þykja einkennilegt þegar ég á í hlut. Mér til varnar er ég þó með Linux í VMWare og Windows XP - sem var lán, því gamli skanninn okkar er ekki studdur í Vista en virkar fínt í XP.
Sá reyndar, eftir nokkrar innskannanir, að ég verð að uppfæra skannann - eða rífa hann í spað og hreinsa undir glerið en hvort það takist giftursamlega er vitaskuld alsendis óvíst
Var á vappi fram á miðja nótt við að skoða gamlar ljósmyndir, þessi hugdetta mín að skanna inn allar gömlu myndirnar er farin að setja nokkur efasemdaský á loft …. þetta er soddann agalegur hellingur !
Hér er ein af mér frá 1987 … þarna var ég ungur og myndarlegur - nú verð ég bara að láta mér hið síðara nægja
Ég skaut líka inn einu videó-i gömlu á vefinn … við mismikla gleði aðalleikaranna
Trackback URI | RSS fyrir athugasemdir