Sent inn af siggimagg hinn 13 mar 2009 klukkan 02:49 eh.
Föstudagur 13 mars
Ég hef verið að skoða ýmsa möguleika í google applications. Margt sniðugt að finna þar, t.a.m. er hægt að blogga í google docs og uploada því þaðan á blog síðuna. Kostur er vitaskuld m.a. sá að til verður afrit af þessum vísikornum á öðrum skipulögðum stað.
Í uppsetningunni rakst ég á þann hnökra að ef valið er (eins og mælt er með í stillingum google docs) “MoveableType” sem API þá birtist titillinn ekki á réttum stað. Lausnin er að velja “MetaWeblog” og þá hegðar þetta sér rétt í alla staði.
Eins er ég að velta fyrir mér að taka alfarið upp PicasaWeb, en gallinn er vitaskuld sá að þarna er tæpast hægt að geyma myndir í fullum gæðum vegna kostnaðar. En birtingarformið er ágætt, aðgengilegt er að setja inn myndir, uppfæra og laga þ.a. afritunarmálin leysir maður þá á annan hátt.
Myndavefurinn minn á PicasaWeb er: http://picasaweb.google.com/sigurdurmagnusson - þetta má svo vitaskuld einhvern daginn snyrta til ![]()
Trackback URI | RSS fyrir athugasemdir