Sent inn af siggimagg hinn 20 des 2008 klukkan 11:02 eh.
Mánudagur 20 des.
Var mættur rúmlega átta í blóðþrýstingsmælitækjagræjun. “Venst örugglega” hugsaði ég, á að mæla á ~20 mín fresti og svo ~45 mín fresti í nótt.
Fundur um VIS málefni haldinn hjá UTL, ágætis yfirferð og stöðustatus.
Var fram á seinnipart í vinnu.
Renndi við í Húsasmiðjunni til að athuga hvort til væru perur í seríuna sem fer utan á svalirnar - auðvitað ekki. Ákvað að renna við í fyrramálið og gá hvort þetta fáist í Byko.
Lagði mig stundarkorn þegar heim var komið. Sigrún eldaði kjúklingarétt, alveg ágætt
Við Lára og Þangbrandur fórum í jólatrés-innkaupaferð. Vitaskuld styrkjum við skátana og kaupum tré og blys hjá þeim. Að venju tókst okkur ekkert sérstaklega vel að velja tré, Lára blikkaði strákflón sem snérist eins og skopparakringla í kringum okkur (magnað!) - Þóra sér þó ekki tré-ið fyrr en á Þorláksmessukvöld svo við höfum góðan tíma til að semja söguna um slæma úrvalið o.s.frv…
Fríða, Pétur og börn - ásamt Nanna og börn komu til að skera laufabrauð. Ég tók lítinn þátt (blandaði jú jólaölið ofan í liðið), og sötraði bara Laphroaig viskí - gaukaði nokkrum dropum ofan í Pétur, en hann sýndi mun meiri lit í útskurðinum.
Mátulega slompaður í bælið … það verður fróðlegt að vita hvort þetta hafi einhver áhrif á blóðþrýstingsmælinguna ![]()
Trackback URI | RSS fyrir athugasemdir