Sent inn af siggimagg hinn 22 des 2008 klukkan 12:14 fh.
Sunnudagur 21 des.
Rumskaði grjótsnemma í morgun þegar Þangi var að gera allt klárt þegar Sigrún kæmi heim. Hún ætlaði að taka rútuna, en vegna viðskilnaðar við eina tösku þá missti hún af rútum og fóru Þóra og Þangi á eftir henni.
Þegar ég komst loksins á fætur heilsaði ég Sigrúnu og kvaddi svo mitt heimafólk, hélt til Péturs þar sem ég hélt mig eiga stutta stund eftir fyrir jólafrí - en eitthvað bættist utan á það í máli Péturs.
Var kominn heim rúmlega þrjú, hófst handa við að koma rafmagni út á svalir. Rak augun í ótrúlegan hlut þegar ég fór að sækja efni út í skúr - var ekki kominn þessi þurslegi gerfihnattadiskur á litla þakið milli mín og nágrannahússins. Ég var ekki par hrifinn, reyndi að segja pólverjunum að þetta ætti að fara - ég myndi aldrei samþykkja þetta á þessum stað - er í beinni línu ef ég stend og grilla á pallinum og kíki niður í bæ. Maggi nágranni kom, nokkrar kítur - ekkert alvarlegar held ég, en hann lofaði að þetta yrði fært úr stað.
Auðvitað voru allar perurnar í seríunni ónýtar, kosta ábyggilega “arm-and-a-leg” - ef þær eru þá yfirleitt til
Var í meiralagi pirraður allan þennan dag, kom mér því þokkalega snemma í bólið. Fyrsti dagur í reykbindindi er ekki alveg að gera sig …..
Trackback URI | RSS fyrir athugasemdir