Sarpur frá desember, 2008

Sent inn af siggimagg hinn 22 des 2008

Sunnudagur 21 des.

Rumskaði grjótsnemma í morgun þegar Þangi var að gera allt klárt þegar Sigrún kæmi heim.  Hún ætlaði að taka rútuna, en vegna viðskilnaðar við eina tösku þá missti hún af rútum og fóru Þóra og Þangi á eftir henni.

Þegar ég komst loksins á fætur heilsaði ég Sigrúnu og kvaddi svo mitt heimafólk, hélt til Péturs þar sem ég hélt mig eiga stutta stund eftir fyrir jólafrí - en eitthvað bættist utan á það í máli Péturs.

Var kominn heim rúmlega þrjú, hófst handa við að koma rafmagni út á svalir.  Rak augun í ótrúlegan hlut þegar ég fór að sækja efni út í skúr - var ekki kominn þessi þurslegi gerfihnattadiskur á litla þakið milli mín og nágrannahússins.  Ég var ekki par hrifinn, reyndi að segja pólverjunum að þetta ætti að fara - ég myndi aldrei samþykkja þetta á þessum stað - er í beinni línu ef ég stend og grilla á pallinum og kíki niður í bæ.  Maggi nágranni kom, nokkrar kítur - ekkert alvarlegar held ég, en hann lofaði að þetta yrði fært úr stað.

Auðvitað voru allar perurnar í seríunni ónýtar, kosta ábyggilega “arm-and-a-leg” - ef þær eru þá yfirleitt til :(

Var í meiralagi pirraður allan þennan dag, kom mér því þokkalega snemma í bólið.  Fyrsti dagur í reykbindindi er ekki alveg að gera sig …..

Sent inn af siggimagg hinn 20 des 2008

Mánudagur 20 des.

Var mættur rúmlega átta í blóðþrýstingsmælitækjagræjun.  “Venst örugglega” hugsaði ég, á að mæla á ~20 mín fresti og svo ~45 mín fresti í nótt.

Fundur um VIS málefni haldinn hjá UTL, ágætis yfirferð og stöðustatus.

Var fram á seinnipart í vinnu.

Renndi við í Húsasmiðjunni til að athuga hvort til væru perur í seríuna sem fer utan á svalirnar - auðvitað ekki.  Ákvað að renna við í fyrramálið og gá hvort þetta fáist í Byko.

Lagði mig stundarkorn þegar heim var komið.  Sigrún eldaði kjúklingarétt, alveg ágætt :)

Við Lára og Þangbrandur fórum í jólatrés-innkaupaferð.  Vitaskuld styrkjum við skátana og kaupum tré og blys hjá þeim.  Að venju tókst okkur ekkert sérstaklega vel að velja tré, Lára blikkaði strákflón sem snérist eins og skopparakringla í kringum okkur (magnað!) - Þóra sér þó ekki tré-ið fyrr en á Þorláksmessukvöld svo við höfum góðan tíma til að semja söguna um slæma úrvalið o.s.frv…

Fríða, Pétur og börn - ásamt Nanna og börn komu til að skera  laufabrauð.  Ég tók lítinn þátt (blandaði jú jólaölið ofan í liðið), og sötraði bara Laphroaig viskí - gaukaði nokkrum dropum ofan í Pétur, en hann sýndi mun meiri lit í útskurðinum.

Mátulega slompaður í bælið … það verður fróðlegt að vita hvort þetta hafi einhver áhrif á blóðþrýstingsmælinguna :D

Sent inn af siggimagg hinn 20 des 2008

Laugardagur 20 des.

Rann á fætur rúmlega tíu.  Morgunmatur, kaffi og vindill.

Skrifaði þessar línur um gærdaginn og lagaði “nýyrðið” sem ég bjó til óvart á fimmtudeginum - orsökum hafði orðið að “orðakökum”, mig hefur greinilega verið farið að lengja eftir jólasmákökum :)

Hvað svo - jú - til Péturs í kjallarann.  Það gengur ágætlega undan okkur í að klæða, en hellingur af vinnu eftir enn.

Plokkfiskur þegar heim var komið - ljómandi góður - og fiskurinn frá honum nafna.

Sjónvarpsgláp fram eftir kvöldi, smá öl með :)  Morgundagurinn verður ugglaust strembinn: a) Sigrún kemur heim grjótsnemma b) til Péturs, og, það allra þyngsta - c) vindlarnir lagðir á hilluna….

Sent inn af siggimagg hinn 20 des 2008

Föstudagur 19 des.

Var í vinnu fram að hádegi, fór þá í nudd til Elke - afar notalegt :)

Tók mér frí eftir hádegið (á móti flugferðinni síðasta sunnudag).  Ætlaði að fara beint til Péturs, en Þóra benti réttilega á að það væri nú gustuks verk að ég byrjaði að fara með henni í búð og hjálpa til við að bera fyrsta skammt af jólainnkaupunum.

Mætti til Péturs um fimmleytið, Rikki líka.  Mér tókst að sýna fram á að setja vatnsrör inn í vegg er ekkert svakalega sniðugt …. Rikki reddaði málinu með því að sjóða í gatið :)

Við kláruðum að klæða hina víðfrægu Norður hlið og vorum komnir heim rúmlega átta.  Þá eldaði ég lasagnette réttinn minn.

Sofnaði yfir einhvurri jólamynd, horfði á Die Hard og reyndi að horfa á The Island - en var orðinn of “sibbinn” til að klára hana af, enda klukkan að verða þrjú.

Sent inn af siggimagg hinn 19 des 2008

Fimmtudagur 18 des

Var nú hálf rotinpúrrulegur í morgun, lagaðist ekkert við sturtuna.  Fletti sneplum og fékk mér Cheerios og kaffi á eftir - engin munur.

Rólegheitaframvinda í vinnunni fram eftir morgni.

Nanna sendi mér í gærkveldi link á myndirnar hans Péturs á Picasa.  Set linkana hér í mánaðaröð: júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember og desember

Luðran plagaði mig meir eftir því sem leið á daginn, þegar ég kom heim úr vinnunni þá lagðist ég á koddann og raknaði ekki við mér fyrr en upp úr 9, maulaði eitthvað lítilræði, horfði á House og fór aftur í bælið.

Þóra og Þangi settu í fyrstu smákökuuppskrift, ég velti mér fram úr um miðja nótt og kannaði afurðina - lofar góðu :)

Næsta »