Sent inn af siggimagg hinn 06 jún 2008
Jafnrétti kynjanna sparkað - ca. 1500 ár aftur ….
Þóra las fyrir mig upp úr trúarriti sem barst inn á heimilið, ég spurði um hæl - hvar skráum við okkur í þennan söfnuð ?
Ritið ber nafnið Panorama fréttir, upplýsingarit Gemeinde Lehrdients og OCG, nr. 2 útgefið júní 2008. Þar er klausa frá Harald R. frá Austurríki sem vakti - eigum við ekki að segja - furðu …
Þannig skoðuðum við hjónabandið okkar, til að rannsaka hvenær það “gengur vel”. Og þá fengum við að sjá; að konan mín nær alltaf “árangri” í undirgefninni, þegar hún er eins hugar með mér og hættir að elta eigin hugmyndir og markmið.
Ég er nú búinn að vera latur við að blogga … en þessu varð ég að koma frá mér ![]()