GÓP félagar fóru í ferð á Eyjafjallajökul 1. maí.  Segja má að þar hafi hurð skollið nærri hælum - en lánið (og veðrið) lék við þau.  Textanum hér að neðan og mynd rændi ég af dv.is.  Fleiri myndir úr ferðinni má sjá á vefnum hans Gísla.

María í sprungu

„Í næstu ferð pissa ég bakvið bíl,“ segir María Hrönn Magnúsdóttir, sjúkraliði og jöklafari, sem féll ofan í jökulsprungu um síðustu helgi. Hún kunni ekki við að pissa bakvið bíl og fór því afsíðis með þeim afleiðingum að detta tugi metra ofan í sprunguna. Ofan í sprungunni kastaðist hún á klakasyllu og staðnæmdist. Talstöð sem hún hafði meðferðis varð til þess að hún náði að komast í samband við samferðarmenn.

„Þetta var mjög sérstök lífsreynsla. Það er ekki á hverjum degi sem maður dettur ofan í jökulsprungu og kemur lifandi upp úr henni. Það var bara algjörlega heppni frá a til z sem gerði það að verkum að ég er lifandi í dag og auðvitað gleðst ég yfir því,“ segir María Hrönn.

María var í jeppaferð uppi á Eyjafjallajökli ásamt fjölda vina og kunningja. Í nágrenni við Goðastein áði hópurinn og ákvað María að nota stoppið til að pissa. Hún kunni ekki við að pissa bakvið bíl og fór hún því í klóssettferð fjarri bílunum. Er hún var komin nokkuð frá hrundi ísinn undan fótum hennar og jökulsprungan kom í ljós. María rann niður sprunguna á ógnarhraða án þess að geta stöðvað sig með nokkru móti. Tugum metrum neðar þrengdist sprungan og kastaðist María yfir opið og staðnæmdist á syllu hinum megin í sprungunni. Þar lá hún án þess að trúa því hvað hefði gerst.