Sarpur frá mars, 2008

Sent inn af siggimagg hinn 31 mar 2008

Mars …

Tja, hvað getur maður sagt. Frásagnagleðin í algjöru lágmarki!

Hvað gerðist helst í mars ?

Fór til Brussel í byrjun mánaðarins, það tók jafn langan tíma að fljúga frá Köben þangað og frá Íslandi til Köben

Flogið yfir Brussel

- myndin sýnir flugleiðina frá Köben :)

Ég fór út að borða á mjög skemmtilegum stað, sendi Láru gagngóða lýsingu á öllu sem lagt var á borð 8 síðna SMS … við mismikinn fögnuð hennar og Þóru (sem fékk lýsinguna á matnum í smáatriðum). Furðulegir forréttir; Gulrótar- og Sellerísafar í tilraunaglösum, margskonar grænmeti skorið í bita og borið fagurlega fram, steik (auðvitað) og í eftirrétt súkkulaðikaka með ís. Með þessu drakk ég “lífrænt ræktað” rauðvín, afspyrnu gott. Já, og, svona fyrir svefnin, þá var þarna OBAN 12 ára gamalt single-malt viský sem ég bara varð að smakka.

Við Þangi skelltum okkur í Þórsmörk í mánuðinum, frábært veður og stórgóð skemmtun. Myndir rötuðu á Austurgötu síðuna hér.

Ekki létum við Þangi okkur það nægja í jeppamennskunni, fórum einnig í dagsferð f4×4 klúbbsins í tilefni af 25 ára afmælis hans, en leið lá um Reykjanesið. Við þvældumst um slóðir sem ég hafði ekki farið áður, með fjörunni í Grindavík og út á affallsrör Reykjanesvirkjunar. Ljómandi vel heppnaður dagur. Líkt og venjulega, finnast myndir á Austurgötu síðunni.

Núna er ég að kljást við að nota Linux í staðinn fyrir Vista, ég var orðinn frekar leiður á þessu …

Vista upp á sitt besta

…og eftir næst nýjustu viðgerðarpakkana frá Micro$oft þá fékk ég ekki einu sinni þetta upp á skjáinn. Eftir að hafa reynt að lemja OpenSUSE til hlýðni, virkaði svo sem allt - en stóra vandamálið var dual-display - tveir skjáir, þá hallaði ég mér að Ubuntu 7.10. Sama barátta þar og þegar ég var við það að gefast upp og fara í Recovery á Vista þá ákvað ég að skella inn Ubuntu 8.04 beta - og viti menn - framtíðin verður björt þegar þessi útgáfa er komin út.

Framkvæmdir heima við hafa ekki verið ýkja miklar, en þó, dropinn holar steininn… Þóra er ekki enn búin að tengja eldavélina, en það hlýtur að fara að koma að því :)

Páskarnir voru, eins og vonandi hjá flestum, yfirkeyrðir í áti og vellystingum.

Við Þóra fórum á árshátíð RLS um helgina, vel heppnað og skemmtilegt.  Hittumst fyrst hjá Árna Albertssyni í fordrykk + snakk og héldum þaðan í Rúgbrauðsgerðina.  Þar var borin fram humar í forrétt, kalkúnn í aðalrétt og súkkulaðikaka með ís í eftirrétt - öllu skolað niður með hvítu og rauðu eins og við átti.

Ingvar, fyrrum söngvari Papana var veislustjóri, hann er býsna fjörugur og óhætt að mæla með honum í þetta hlutverk.  Óskar vinnufélagi hafði í samvinnu við skemmtinefndina sett saman myndband um RLS - sem var stórskemmtilegt (a.m.k. eftir alla þessa drykkju), og, augljóslega hefur drengurinn mjög gaman af klippimennsku því þetta var æði vel gert.

Þetta eru svona helstu atriðin frá síðasta mánuði, tja nema, Kolbeinn kom pabba sínum á óvart og færði honum að gjöf eitt stykki svona:

Bjórdælan

Eintóm tilhlökkun að prófa græjuna, eintóm tilhlökkun :)

 

Sent inn af siggimagg hinn 04 mar 2008

Blogg-itti-blogg

Sigrún benti mér á mikinn bloggara, daglegt amstur, ekkert skafið utan af hlutum … eða þannig. Mér hafði reyndar dottið í hug þessi leið … en ég held að hún sé leiðinleg til lengdar.  Datt reyndar inn á Eiki frændi linkinn hjá Finni … þar er þessi færsla snilld :D

Ég hnaut um athyglisverða lesningu í Bakþönkum Fréttablaðsins í dag, myndar stúlka, Karen D. Kjartansdóttir. Það er ágætlega hnyttið hjá henni umfjöllun um Þórðargleði landans vegna ófara hinna nýríku - og mat gamlingjans á því að nýta eigi landið til fulls :)

En, ég er ekki alveg að skilja niðurlagið, þar vísar hún í hið merka rit Æskuna - og endar pistilinn svo: “Sérstaklega finnst mér gaman að skoða bréfin frá börnunum í Nígeríu sem óskuðu eftir íslenskum pennavinum. Þarna voru Nígeríusvindlarar samtímans að stíga sín fyrstu skref að ríkidæmi.”

Er ég svona einfaldur - eða er daman að rugla út í hið endalausa?