Sent inn af siggimagg hinn 21 feb 2008
Ljóti dagurinn í vinnunni !
SIS kerfin í kleinu og ástæðan ?
“If the date on the system is old (like 1970) or far out in the future (like 2010), vxconfigd core dumps.”
Ekki er nú alveg komið að þessari framtíðardagsetningu - en kvikindin hafa ekki reiknað með öðru en að 2010 væri fáranlega langt í burtu og ábyggilega nógu tryggt ártal til að nokkur væri að keyra þetta gamla útgáfu af Veritas Volume Manager - miður febrúar 2008 var víst tíminn.
Í stað þess að eiga “rólegan” dag, er ég búinn að vera að berjast við að koma kerfunum í gang á nýjan leik - sem er býsna snúið ef eina leiðin framhjá vandamálinu er að setja dagsetninguna aftur - og fram - og aftur - og muna að setja hana fram aftur … eða var það aftur fram :s
Sofna ugglaust snemma í kvöld.