Ekki hef ég verið ýkja duglegur að blogga - allt hjal um fréttir frá Lissabon fóru m.a. fyrir “ofan garð og neðan”. 

Hinsvegar, hefur gengið vel að banka eldhúsinu saman og erum við formlega flutt úr því gamla í hið nýja - þó eitthvað sé nú eftir af “innansleikjum”.

Allur umgangur er nú mun auðveldari í nýju uppsetningunni heldur en þeirri gömlu, auðveldlega geta þrír verið að framkvæma og tveir að þvælast fyrir … sem er Gríðarleg breyting frá fyrri tíð. …svo er þetta bara asskoti flott líka :)

Nokkrar svipmyndir

eldhús

eldhús

eldhús

eldhús

Við notuðum nokkuð úr gömlu einingunum eins og sjá má, litlu eikar skúffurnar og fremsti skápurinn í eyjunni koma úr gömlu innréttingunni, restin er úr Ikea með bráðabirgða skúffu-frontum, en ætlunin er að setja þykkan krossvið og lakka - líkt og gert var í “denn”.  Einn skemmtilegasti “fídusinn” eru gömlu skurðarbrettin sem eru til staðar í eyjunni.  Segja má að breytingin sé þess eðlis að andinn úr gamla eldhúsinu fylgi með - sem er náttúrulega alveg frábært.

Nokkrum dögum fyrir jólin varð ég lasinn, ætla ekkert að tíunda hér hvað kom upp - en vont var það.

Á Þorlák var haldin skötuveisla hér og skorin laufabrauð.  Fríða, Pétur, Ágúst, Gugga, Rúnar, Jay og öll börnin komu. 

laufabrauð

Fríða, Þangbrandur og Þórir að skera

Þóra og Jay á spjalli

Á aðfangadag var undirbúningurinn langt kominn og veittist allt eitthvað svo auðvelt, sennilega vegna þess að mér var “batnað” og húsið allt svo vinnuvænt.

Afi og amma í “pakka-ferð”

Jólaendurnar undirbúnar

Lára hafði yfirumsjón með að dekka borðið

Það munar öllu að hafa alvöru þjón í þessu :)

Þegar allir voru búnir að borða meir en nóg var sest við jólatré-ið og lesið á pakkana.  Að venju var þetta ærin lesning.

Ekki kom það heldur á óvart að stærstu pakkarnir fóru til Þangbrands :)

Pabbi varð að gá hvort hann kynni eitthvað ….

…en hafði ekki roð í guttann.

Jóladagur var afslappaður, Þangbrandur bjó til piparkökuhús

…á meðan flestir hinna lágu í leti.

Um kvöldið var haldið til afa og ömmu og fengið jólahangikjötið.  Þegar heim var komið voru allir búnir að fá nóg og lögðust máttlausir framan við sjónvarpið - meir að segja hafði stússið tekið á Hvæsi … eins og sjá má.

Gleðileg jól !