Sarpur frá nóvember, 2007

Sent inn af siggimagg hinn 26 nóv 2007

Framkvæmdastopp

Fer til Lissabon á morgun og verð fram á laugardag, þetta þýðir vitaskuld að ekkert mun gerast í framkvæmdum á heimilinu. Skrifa ábyggliega eitthvað skemmtilegt frá þeirri ferð á meðan á henni stendur.

Sunnudagurinn var fínn í framkvæmdum, við Þangbrandur kláruðum að loka gangveggnum - og Þóra sá eitthvað gerast, laugardagurinn fór í lagnir og “drátt” þar sem ekkert sást á ytra byrðinu - þ.a. Þóru fannst litið hafa áorkast þann daginn :) en hún var ánægð með sunnudaginn.

gangur opinn

“Before …”

gangur lokaður

“…and after”

úr eldhúsi

Horft innan úr eldhúsi, eftir er að ganga frá veggnum, gólfi, mála, innréttingum og öðru smálegu :)

Sent inn af siggimagg hinn 24 nóv 2007

Ég á afmæli í dag …

ég á afmæli í dag
ég á afmæli ég sjálfur
ég á afmæli í dag

…og Sigrún líka :)

Lára sá um að ég fengi afmælisköku, kerti og söng :)

Kertablástur

Annars fór dagurinn í að leggja rafmagn, net- og sjónvarpslagnir - mikið komið … bara eftir að raða þessu í dósirnar.

Í kvöld förum við hjónin í afmæli hjá Ágústi svila - hann verður fimmtugur karlinn, á þriðjudaginn … en ef hann veitir vel þá verður honum fyrirgefið að troða sér inn á þennan merka dag.

Sent inn af siggimagg hinn 20 nóv 2007

Heilmikið að gerast …

Síðasta vika var ágæt í átakinu, náði bæði fríi og að vera duglegur.  Myndirnar hér að neðan eru til skemmtunar - en eins og sjá má er nokkuð eftir enn … mikið búið samt :)

 Stofan úr Betlehem

Stofan séð úr Betlehem.

 

Eldhús

Eldhús í vinnslu …

 

Eldhús

Hvað nú …

 

Eldhús

obbobbobb

 

 

Eldhús

Kominn svipur

 

Eldhús


Gólfið slípað ..

 

Eldhús

Voða fínt …

 

Eldhús

Það vantar ekki rafmagnið á þessum bæ :)

Næst er að ganga frá raflögnum, netlögnum og sjónvarpsköplum … verður væntanlega klárt í vikunni.

Sent inn af siggimagg hinn 07 nóv 2007

Smá glimps …

Tja - mikið að gera í húsinu, allt á fullu, stofan næstum klár og byrjað að berja á eldhúsinu.

 Þessi mynd er sérstaklega ætluð Sigrúnu - ásamt spurningunni - hvar er þetta tekið ?

Hornið

Glöggir gestir kunna að sjá einhvern mun :)