Sarpur frá október, 2007

Sent inn af siggimagg hinn 29 okt 2007

Brussel vika, þrældómshelgi …

Kynningin á NORVIS búnaðinum var fróðleg, segja má að Norski búnaðurinn líti betur út en sá íslenski.  Virknin í kerfinu virtist mér einnig vera mun stöðugri.  Brösulega gekk þó að keyra kynninguna í gegn vegna “tæknilegra” vandamála - það er alltaf jafn hjákátlegt að sjá menn brasa við skjávarpa :)

Léttar veitingar voru í boði á eftir, við Vigfús skiluðum okkar og gengum niður í bæ og fengum okkur kvöldverð, pizza og rauðvín - alveg ljómandi fínt.

SIS-Tech fundurinn á miðvikudaginn var ágætur, mátulega stuttur - vorum búin um þrjú leytið.  Ég nennti ekki að fara að versla eins og bent var á að gæti verið sniðugt, slappaði af, fékk mér kaffi og bjór á röltinu.  Um kvöldið snæddi ég þessa líka ljómandi fínu steik á hótelinu og kom niður með rauðvíni: Chateu Lacombe Noaillac, Medoc, Cru Bourgeois 2001, ljómandi gott, ekki of þungt við steikina.

Seinna um kvöldið kláraði ég rauðvínsflösku sem ég hafði keypt mér til að “hafa”, Norfolk Rise, Shiraz 2004, South Australia - klassískur Ástrali.

Mér fannst hótelið tæpast standast þessar fjórar stjörnur sem það skartaði fram að steikinni, herbergið sem ég var í var orðið nokkuð lúið og gluggatjöldin hreint út sagt hrikalega óhrein.

Flaug heim með Brussels Airlines, rétt náði að hlaupa milli hliða í Icelandair vélina - því líkt og vikunni áður seinkaði vélinni frá Brussel, ég vona að þetta sé ekki farið að verða eitthvurt trend …  Taskan kom heim í gær - með viský-inu sem Danska lögreglan sendi mér sem þakklætisvott fyrir aðstoðina í sumar.

Þurfti að hendast í vinnuna á heimleiðinni til að koma ISIS kerfinu í gang, það tók mig nokkra stund að átta mig á því hvað ylli vandanum - en að venju, kom ég þessu í gang.

Framkvæmdagleðin tók öll völd þegar heim var komið.  Föstudagurinn fór í verslunarleiðangur, IKEA til að kaupa hillur og skenk, Línan til að skoða sófasett og Eirvík til að athuga hvernig ganga á frá (væntanlega) nýrri uppþvottavél.

Á laugardeginum var gengið í að undirbúa parketlögn, plötur sniðnar í gólf, gengið frá raflögnum o.fl. sem mér sýndist þurfa hafa klárt áður en parketið yrði límt á.

Sunnudagurinn fór í að parketleggja, rosalega flott :D  Eins hreinsaði ég frá skorsteininum fyrir kamínunni sem á að koma í stofuna og þurfti að ganga lengra til að rétta af einn vegginn - sem bæði var bólgin eftir vatnsflóð af efrihæðinni og almennum lasburði/öldrun.

Rifið frá skorstein

Svona lítur þetta út, hlaðið og fínt :)

Parketlögn

Parket-lögnin sést ekki ýkja vel hérna - en þeir sem til þekkja sjá væntanlega strax breytinguna :D

Samsetningastigið er “alveg að bresta á”, Þóra er nokkurnvegin búin að ákveða hvaða kamínu á að kaupa, gólfslípun er framundan og lökkun þ.a. okkur á ekki að þurfa að leiðast næstu vikur ……..

Sent inn af siggimagg hinn 23 okt 2007

Helgar-update frá Brussel

Hitti Ragga eftir að komast loks heim, rúmlega eitt aðfararnótt laugardagsins. Sátum við rautt og öl fram að morgunfréttatíma og var ég nokkuð framlár við smíðar þann daginn. Fékk frá honum disk sem ég þarf að taka út, 9 lög, nokkur gömul og önnur ný.

Við Þóra mættum seinnipartinn í svokallaða “erfidrykkju TMD” (verkliður: tæma starfsmannasjóðinn) sem haldin var hjá Þorvarði og frú. Þau hjónin sáu um matarundirbúning og verður að setjast að þau hafi staðið sig með Mikilli prýði - hreint út sagt frábært. Ýmsar gerðir af drykkjum runnu niður og voru sumir orðnir nokkuð hífaðir þegar við komumst loks heim.  Ég var flottur í nýju jakkafötunum :D

Sunnudagurinn var enn erfiðari í smíðum, en ég náði þó að færa stofuhurðargatið og laga rafmagnslagnir þar um kring. Nú er mikill spádómur um hvernig leggja á allar nýjar rafmagnslagnir, síma, tölvutengi og sjónvarpskapla fram og til baka - ég vonast til að geta klárað það allt um helgina þ.a. hægt sé að fara að loka þessum götum mínum :)

Flaug til Brussel í gær, verð á kynningu seinnipart í dag á NORVIS (Norwegian Visa Application System) og á morgun er SIS-Tech fundur.

Sent inn af siggimagg hinn 19 okt 2007

Allt vont …

SAS hundskaðist ekki af stað frá Brussel fyrr en 45 mínútum of seint - sem er yfirleitt sá tími sem er á milli lendingar í Kaupmannahöfn og brottfarar heim … svo ég sit í Köben, get ekki fengið mér öl - því ég er á bílnum heima :(

Raggi og Lára eru væntanlega búin að afpanta borðið á Caruso svo framundan er þur flugvélamatur í staðinn fyrir eðal lambasteik. Við Raggi ætlum þó að hittast eftir lendingu og skella í okkur einni - eða tveimur rauðvínsflöskum …

Bætti mér þetta upp og keypti mér ný jakkaföt svo ég verð sómasamlegur í tauinu annað kvöld.

Sent inn af siggimagg hinn 19 okt 2007

Á heimleið 19 október

Sit út á velli í Brussel á þráðlausanetinu þar - afskaplega hægvirkt og leiðinlegt … eiginlega eins og þetta fj… 3G kort sem Síminn laug að myndi virka flott í Brussel.

Fundurinn í gær var ekkert voðalega skemmtilegur, efni hans var að fara í gegnum niðurstöður tæknihóps um val á fyrirtækjum sem boðið höfðu í rekstur SISNET.   Farið í gegnum kauðslegan texta sem ekki mátti segja of mikið, of lítið eða ekki neitt, og fjallað um stigagjöf fyrirtækjanna fram og til baka.  Niðurstaðan verður kynnt í lok mánaðarins, en hún á eftir að fara í gegnum ófáar nefndirnar áður en það gerist :)

Komment dagsins á einn kolleginn eftir að hafa nánast gengið á súlu vegna þess að hann var að - best að koma þessu til skila í hans eigin orðum: “We must show sincere interest in our fellow human beings” -því er ekki að neita að stúlkan var ansi hugguleg :D

Fékk mér í hádeginu pizzu, Calzone, fastur liður - eins og að hún er ávallt borðuð á sama veitingastaðnum La Riviera, og eru þjónarnir þar farnir að heilsa okkur með virktum.

Kvöldmaturinn var líka ítalskur, Farfalle í rjómasósu með reyktri önd.  Frekar dýrt miðað við hvað þetta var, en rann ljúft niður með víni hússins (mér láðist að skrifa hjá mér tegundina - franskt var það).

Í kvöld stefnum við Raggi Braga á að hittast, ekki í Brussel eins og lengi hefur staðið til - heldur á Caruso í miðbæ Reykjavíkur.  Því er eins gott að Icelandair og SAS standi sig í stykkinu og séu á réttum tíma.

Sent inn af siggimagg hinn 17 okt 2007

Kominn til Brussel

Þriðjudagurinn fór eins og ég reiknaði með, vinna, badminton og svo “afslöppun”.  Reyndar fór nokkur tími í að skoða mublur á netinu og að velja sjónvarp - hygg að ég sé búinn að lenda því máli 37 tommu Toshiba tæki með öllum þessum helstu fídusum sem ku þurfa í dag, og, full HD.

Skaust aðeins í vinnuna í morgun - tók mig rúmar 40 mínútur vegna einhverra umferðartafa :( var u.þ.b. klukkustund á staðnum og bjargaði ýmsu smákvabbi áður en ég renndi út á flugvöll og hélt via Köben til Brussel .

Ágætis flug, skítsæmilegur matur … nú þarf ég bara að komast í gírinn að láta mig hlakka til fundarins á morgun :)

Næsta »