Fyrsta mál - halda áfram að baksa með að koma Vista á koppinn á lappanum. Mesta furða, gengur bara bærilega, en Vista er hrikalega fansí kerfi - megin ástæðan fyrir uppfærslunni
…tja, og vitaskuld að fá stærra diskpláss, já, og að komast út úr þessum “hægagangsvítahring” sem fyrri uppsetning var komin í.
“Smotterís” vesin er þó óleyst, engin leið að spila myndbönd á t.d. visir.is og tonlist.is - en virkar bærilega allstaðar annarsstaðar. Hvort vandinn er bundinn IE7 eða WMP 11 á alveg eftir að koma í ljós.
Hitt málið, að koma upp þessu bloggi - var búinn að ”fórna” Sigrúnu í test og vissi því sem var að það yrði ekkert mál að virkja Wordpress sem blogg kerfi. Vandinn er þó helstur að íslenskun síðunnar er ekki einfalt mál, þrátt fyrir að til sé íslenskaður grunnur að kerfinu að þá eru hin einstöku þemu ekki að styðja þýðingarnar. Hvað um það, þetta er komið á koppinn, íslensku málið verður bara blandað - og þá lagað eftir því í hvaða stöðu “duglegheitagírinn” er.